Gufunesvegur 32

Á Gufunesvegi 32 verða íbúðir af ýmsum stærðum og lifandi starfsemi á jarðhæð.

Gufunesvegur 32, Yrki arkitektar

UM GUFUNESVEG

Við Gufunesveg 32 undirbýr Þorpið vistfélag byggingu fimm hæða fjölbýlishúss fyrir almennan markað, auk atvinnuhúsnæðis.

STÆRÐ

Íbúðir verða á bilinu 64-72, eins til fimm herbergja og meðalstærð um 70 m².

AÐRIR EIGINLEIKAR

Gert er ráð fyrir mikilli lofthæð á jarðhæð, þar sem verði atvinnutengd starfsemi, m.a. kaffihús/veitingastaður á suðurhorni. Sameiginlegur inngarður verður í húsinu miðju.

Um verkefnið

Notkun

Íbúðir og atvinnustarfsemi

Lóð

1.883m²

Home icon

Húsnæði

Íbúðir verða á bilinu 64-72, eins til fimm herbergja og meðalstærð um 70 m². Í kjallara verða geymslur fyrir íbúa ásamt bílastæðum. Íbúar sem eiga ekki bíl munu geta sameinast um deilibíla. Á jarðhæð verða hjólageymslur með rafhleðslu- og viðgerðaraðstöðu.

Hönnun

Samþykkt deiliskipulag liggur fyrir, Yrki arkitektar vinna að endanlegri hönnun en samþykktar teikningar liggja ekki enn fyrir.

Globe icon

Umhverfisvæn vottuð

Gert er ráð fyrir að byggingin verði svansvottuð.

Upphafsdagur framkvæmda

Vonir standa til að framkvæmdir geti hafist sumarið 2024 og að þeim geti lokið á fyrsta ársfjórðungi 2026.

Algengar spurningar

    Önnur verkefni

    Decor image 1 Decor image 2 Decor image 3