Guðný María Jóhannsdóttir og Áslaug Guðrúnardóttir

Nýir stjórnendur hjá Þorpinu vistfélagi

Þorpið vistfélag hefur ráðið tvo nýja stjórnendur með það að markmiði að halda áfram að þróa og byggja íbúðarhúsnæði í Reykjavík.

Guðný María Jóhannsdóttir og Áslaug Guðrúnardóttir hafa verið ráðnar til að stýra skipulags- og umhverfismálum og sölu- og markaðsmálum hjá félaginu. Báðar voru þær áður stjórnendur hjá Reykjavíkurborg.

Guðný María er viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Bifröst. Guðný María starfaði sem sérfræðingur í atvinnu- og borgarþróun hjá Reykjavíkurborg og starfaði þar áður hjá Isavia sem forstöðumaður viðskiptaþróunarsviðs. Hún tekur við starfi framkvæmdastjóra skipulags- og umhverfismála.

Áslaug er viðskiptafræðingur með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Hún starfaði áður sem kynningar- og markaðsstjóri hjá Listasafni Reykjavíkur og þar áður fréttamaður á RÚV. Hún tekur við starfi framkvæmdastjóra samskipta, sölu- og markaðsmála.

Þorpið vistfélag er eitt stærsta fasteignaþróunarfélag landsins, með um 1.300 íbúðir í byggingu, hönnun og þróun í Reykjavík. Félagið er að ljúka uppbyggingu á 137 íbúðum fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur við Jöfursbás í Gufunesi sem eru fyrstu íbúðirnar í þessu nýjasta hverfi borgarinnar. Framkvæmdir hefjast einnig í haust á lóð félagsins við Gufunesveg í sama hverfi þar sem byggt verður fjölbýlishús með 72 íbúðum. Fjölmörg önnur verkefni eru í farvatninu, þar á meðal uppbygging vistvæns græns hverfis í Ártúnshöfða í námunda við endastöð fyrsta áfanga Borgarlínunnar við Krossmýrartorg. Þar er félagið að hanna og þróa allt að 1.000 íbúðir auk atvinnuhúsnæðis og er þetta eitt stærsta fasteignarþróunarverkefni í sögu Reykjavíkur. Þá er félagið að þróa uppbyggingarreit á horni Bræðraborgarstígs og Vesturgötu, auk þróunar á öðrum verkefnum víða um borgina.

Tilgangur Þorpsins er að þróa og byggja til sölu og/eða til leigu fasteignir og byggingarlausnir fyrir einstaklinga og fyrirtæki þar sem áhersla er lögð á hagkvæmni í byggingarkostnaði, grænar lausnir og vistvænt umhverfi þar sem fólk býr saman í sátt við umhverfi sitt. Þorpið vill taka þátt í uppbyggingu vistvæns samfélags sem byggir á deililausnum, samvinnu fólks og samstarfi.